Grunnhönnun

Grunnhönnun RHnet byggir á IP samskiptastaðlinum yfir gigabit ethernet á ljósleiðrum. Rekstraröryggi er tryggt með því að hringtengja tengipunkta á höfuðborgarsvæðinu og á Akureyri og nota IP beiningaraðferðir til að beina umferð framhjá bilunum. RFC-3704 síun er notuð á tengingum sérhvers aðila að RHnet. Sjá álagsmerkt kort af RHnet til glöggvunar.

Höfuðstöðvar RHnet eru í Neshaga 16 og þar tengist Háskóli Íslands, Landsbókasafn/Háskólabókasafn og Veðurstofa á 10Gbs sambandi og aðrir aðilar á 1Gbs samböndum. Þar eru einnig tengdar flestar þjónustuvélar RHnet. Neshagi 16 hýsir einn af þremur tengipunktum NORDUnet við RHnet. Frá Neshaga er 10Gbs tenging í eldri höfuðstöðvar RHnet í Tæknigarði við Dunhaga. Þar er önnur tenging til Háskóla Íslands, tenging Listaháskóla Ísland, tenging við Íslenska Erfðagreiningu og 100G tenging til UWC ásamt lághraða safnsamböndum þeirra sem tengjast RHnet um net annara þjónustuaðila (Símans, Vodafone og Nova). Þar er einnig hýstur tengipunktur NORDUnet við RHnet. Frá Neshaga 16 er 10Gbs tenging til RHnet tengipunkts við Grennsásveg (þar sem enginn tengist eins og er), þaðan að Keldnaholti þar sem Belgingur, Landbúnaðarháskóli Íslands, Háskólinn á Bifröst og Matís ohf tengjast. Á Keldnaholti er einnig tenging við áfram á Hvanneyri þar sem Landbúnaðarháskóli Íslands tengist. Frá Keldnaholti er tenging við tengipunkt við Bústaðaveg þar sem Veðurstofa Íslands og Landspítali - Háskólasjúkrahús tengjast. Þar tengist einnig ofurölvusamstarf evrópskra veðurstofa (UWC) á 100G. Á Bústaðavegi er einnig þriðji tengipunktur NORDUnet. Síðan liggur leiðin að Hringbraut þar sem Landspítalinn - Háskólasjúkrahús, Krabbameinsfélag Íslands og Háskólinn í Reykjavík tengjast og þaðan er hringnum síðan lokað með 10Gbs tengingu í Tæknigarð aftur.

Hver RHnet tengipunktur er því tvítengdur og verði slit á ljósleiðurum er umferð ávallt beint eftir hringnum stystu virka leið með OSPF leiðstjórn. Í hverjum tengipunkti eru beinar sem taka við umferð tengdra aðila á 1Gbs eða 10Gbs ethernet. Í hverjum tengipunkti má tengja 6-10 aðila við RHnet án viðbótarbúnaðar.

Utan höfuðborgarsvæðis eru tengingar um ljósleiðara frá Orkuveitu Reykjavíkur til Hvanneyrar (þar sem Landbúnarðarháskóli Íslands er tengdur). Varasambönd eru um örbylgjukerfi Vodafone. Tenging til Akureyrar er um ljósleiðara yfir miðhálendið frá virkjunum Landsvirkjunar á Þjórsársvæði til Eyjafjarðar. Á Akureyri eru þrír tengipunktar hringtengdir. Ljósleiðari frá Reykjavík kemur inn í símstöðina á Akureyri þar sem RHnet er með tengipunkt. Þaðan eru tengingar í punkt við Eyrarveg (þar sem Fjórðunssjúkrahúsið tengist) og í Sólborg (þar sem Háskólinn á Akureyri tengist). Tenging milli þessara tengipunkta lokar síðan hringnum á Akureyri. Tengipunktur RHnet í Hafnarfirði (þar sem Hafrannsóknastfonun tengist) er tengdur um ljósleiðarakerfi Mílu við Neshaga og Tæknigarð.

Í höfuðstöðvum RHnet í Neshaga er ein af þremur 100Gbs tengingum RHnet við NORDUnet. Hinar eru staðsettar í Tæknigarði og við Bústaðaveg. Þessum tengingum er stjórnað af Juniper MX204 beinum sem sjá um BGP samskipti við NORDUnet. Eldri MX240 jaðarbeinar RHnet sjá einnig um tengingar við RIX (skiptipunkt innlendrar internet umferðar) en um það samband fara samskipti RHnet við innlend net.

Tengipunktar NORDUnet á Íslandi eru síðan tengdur umheiminum um 100G tengingu um DANICE til Danmerkur, 100G á FARICE til London og 100G um IRIS til Írlands.